Forsetahjón heimsækja Grindavík og ræða við heimamenn um jarðhræringar sem valdið hafa usla á Reykjanesskaga og viðbúnað við þeim. Fannar Jónasson bæjarstjóri tók á móti forsetahjónum á skrifstofum Grindavíkurbæjar þar sem þau ræddu við fulltrúa bæjarstjórnar og starfsfólk. Næst litu þau við hjá ungmennum að störfum á vegum Vinnuskóla Grindavíkurbæjar. Þaðan var haldið niður á höfn þar sem forsetahjón heimsóttu skrifstofur útgerðarinnar Þorbjörns og fylgdust með löndun úr frystitogaranum Hrafni Sveinbjörnssyni. Forsetahjón voru gestir á vikulegum fundi eldri borgara í Kviku, menningarhúsi Grindavíkur. Þau litu við í versluninni Blómakoti, þar sem tjón varð í skjálftunum og snæddu að því loknu hádegisverð ásamt heimilisfólki á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð. Heimsókninni í Grindavík lauk með kaffisopa á Bryggjunni þar sem rætt var við starfsfólk og gesti.
Fréttir
|
03. ágú. 2022
Grindavík
Aðrar fréttir
Fréttir
|
16. maí 2024
Fundur og ráðstefna í Tallinn
Forseti á fund með forsætisráðherra Eistlands.
Lesa frétt