Fréttir | 30. apr. 2024

Maríusystur

Forseti tekur á móti Maríusystrum. Í þeirri lokuðu reglu eru konur sem vilja efla eigin styrkleika og vinna saman að góðum málefnum. Einkunnarorð reglunnar eru: Þekktu sjálfan þig. Konurnar hittast að jafnaði tvisvar í mánuði. Á Bessastöðum kynntu þær sér sögu staðarins og húsakynni og forseti fræddist um starf reglunnar. Nánari upplýsingar um hana má sjá hér.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar