Fréttir | 06. des. 2023

Orðuveiting

Forseti sæmir Tim Ward lögmann riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf í þágu íslenskra hagsmuna á alþjóðavettvangi. Ward var málflytjandi Íslands í Icesave-málinu. Þann 23. janúar í ár var áratugur liðinn frá því að EFTA-dómstóllinn kvað upp dóm í málinu, Íslandi í vil. 

Í fylgd með Ward komu á Bessastaði þau Kristján Andri Stefánsson sendiherra og lögmennirnir Jóhannes Karl Sveinsson og Þóra M. Hjaltested, sem áttu sæti í málflutningsteymi Íslands í Icesave-málinu, auk Catherine Davidson, eiginkonu hans og Þorsteins Siglaugssonar, vinar Wards frá fornu fari.

 

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar