Fréttir | 07. maí 2024

Kólumbía

Forseti tekur á móti nýjum sendiherra Kólumbíu, Guillermo Francisco Reyes González, sem afhendir trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um samskipti ríkjanna á alþjóðavettvangi, sameiginlega hagsmuni og framtíðarhorfur í Kólumbíu. Þá var rætt um reynslu beggja ríkja af eldgosum og því tjóni sem þau geta valdið. Nefndi sendiherra að stjórnvöld ytra horfðu með velþóknun til aðgerða hér.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar