Fréttapistill | 16. nóv. 2023

Dagur íslenskrar tungu

Mikið þótti mér vænt um að geta í dag þakkað fólki sem kennir íslensku sem annað mál fyrir það góða starf. Þetta einvalalið á sér félag, Ísbrú - félag kennara sem kenna íslensku sem annað mál, og við hátíðlega athöfn á Bessastöðum tók formaðurinn Þorbjörg Halldórsdóttir við þakkarskjali. Síðan fögnuðum við öll saman degi íslenskrar tungu, fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. Vel var við hæfi að gera það á þessum stað. Hér nam Jónas á sínum tíma, var þegar farinn að yrkja og því var ævistarfið hafið.

Íslenska er frábært og fallegt tungumál og undir okkur sjálfum komið að efla það og styrkja enn frekar. Margt kemur þar til álita. Meðal annars þarf fólk í ábyrgðarstöðum á opinberum vettvangi að ganga á undan með góðu fordæmi og við þurfum að tryggja sess íslenskrar tungu í stafrænum heimi. Svo verðum að tryggja að fólk sem hingað flyst að utan geti lært málið og ekki síður börn þeirra sem fæðast hér og verða væntanlega tvítyngd. Við ættum öll að vera umburðarlynd og víðsýn, átta okkur á ólíkum hreimi og skilja að það tekur tíma að ná tökum á öllum þeim ástkæru og ylhýru orðum sem við notum í dagsins önn.

Íslenskt samfélag hefur auðvitað gerbreyst frá því að Jónas Hallgrímsson var og hét. Við höfum að mestu gengið til góðs, götuna fram eftir veg. Nú mun um fimmtungur íbúa landsins vera með rætur í útlöndum. Því er það þjóðarnauðsyn að sá hluti samfélagsins megi læra íslensku eftir bestu getu og vilja.
Til hamingju með dag íslenskrar tungu, kæru landsmenn!

Birtist fyrst á Facebook-síðu forseta 16. nóvember 2023.

  • Stjórn Ísbrúar, félags kennara sem kenna íslensku sem annað mál, taka við viðurkenningu á Bessastöðum á degi íslenskrar tungu.
  • Þorbjörg Halldórsdóttir, formaður félagsins Ísbrú, tekur við þökkum til þeirra sem kenna íslensku sem annað mál við hátíðlega athöfn á Bessastöðum á degi íslenskrar tungu.
  • Meðlimum í Ísbrú - félagi kennara sem kenna íslensku sem annað mál, þakkað með hátíðlegri athöfn á Bessastöðum á degi íslenskrar tungu.
  • Þorbjörg Halldórsdóttir, formaður Ísbrúar - félags kennara sem kenna íslensku sem annað mál, afhendir myndaorðabókina Orð eru ævintýri sem nýverið kom út hjá Menntamálastofnun. Í bókinni er grunnorðaforða íslenskunnar komið til skila með myndrænum hætti.
Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar