Fréttapistill | 22. jan. 2024

Konunglegar kveðjur

Í morgun átti ég símafund með Karli Gústafi Svíakonungi. Hann óskaði eftir samtali vegna náttúruhamfaranna á Reykjanesskaga og lét í ljós stuðning og samúð sænsku þjóðarinnar. Það sama gerði Karl Bretakonungur í bréfi sem hann sendi mér fyrir helgi. Þau Kamilla drottning lýstu þar aðdáun sinni á starfi viðbragðsaðila á Íslandi og tjáðu samhug sinn með Grindvíkingum sem hafa þurft að flýja heimili sín. Gott er að finna fyrir hlýhug og stuðningi grannþjóða þegar á reynir. Má þá nefna líka frændur okkar í Færeyjum sem hafa lagt söfnun Rauða krossins lið til styrktar Grindvíkingum.

Rúm vika er nú liðin frá því að gos hófst við Grindavík og hraun flæddi yfir byggð í fyrsta sinn á Íslandi í hálfa öld. Þótt eldsumbrotum sé lokið að sinni er ljóst að straumhvörf hafa orðið við Grindavík. Við vitum núna að ekkert verður þar sem fyrr. Nú þarf nýjar lausnir, ný svör og ný heimili til lengri eða skemmri tíma. Þetta þarf að vera sameiginlegt markmið okkar Íslendinga.

Þannig hljóðaði kveðja sem ég sendi Grindvíkingum á íbúafundi þeirra á mánudaginn var og Fannar Jónasson bæjarstjóri las upp fyrir mína hönd. Kveðjuna sendi ég frá Vestmannaeyjum þar sem ég var í byrjun vikunnar, heimsótti skóla og fyrirtæki og lauk deginum á dvalarheimilinu Hraunbúðum. Þar fylgdist ég með leik karlalandsliðsins á Evrópumótinu í handbolta í hópi aldraðra Eyjamanna. Þau vita mörg af eigin reynslu hvernig það er að þurfa að yfirgefa heimili sín í skugga eldsumbrota og hugsa hlýtt til Grindvíkinga, eins og þjóðin öll. Og mikið var sigurinn úti flottur í dag. Áfram Ísland!

Læknadagar fóru fram í vikunni sem leið. Þar opnaði ég málþing um umhverfis- og heilbrigðismál og minnti sem fyrr á mikilvægi forvirkra aðgerða og lýðheilsu í allri okkar heilbrigðisþjónustu. Þetta hefur verið eitt minna leiðarstefja á forsetastóli.

Á fimmtudaginn naut ég svo þeirrar ánægju að afhenda Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands á Bessastöðum. Að þessu sinni voru þau veitt fyrir verkefni sem snýst um nýja tækni til að draga úr kolefnislosun í byggingariðnaði. Ég óska þeim Heiðari Snæ Ásgeirssyni og Gonzalo Patricio Eldredge Arenas aftur til hamingju og óska handhöfum allra öndvegisverkefnanna áfram velfarnaðar. Ykkar er framtíðin!

Í vikunni var líka veittur styrkur úr Vísindasjóði Lungnasamtakanna, til rannsóknar á nýju meðferðarúrræði gegn lungnaskaða vegna öndunarvéla. Eliza er verndari Lungnasamtakanna og færði Jóni Pétri Jóelssyni nýdoktor styrkinn. Þá afhenti Eliza Hvatningarverðlaun ábyrgrar ferðaþjónustu í vikunni sem leið. Þau komu í hlut Bláa lónsins.

Saman tókum við Eliza svo þátt í viðburði Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Þar perluðum við og fjöldi annarra sjálfboðaliða armbönd sem seld verða til styrktar Krafti. Á armböndunum má lesa hvatningarorðin Lífið er núna. Um leið og við eigum að læra af reynslunni og búa í haginn fyrir framtíðina megum við reyna að njóta hvers dags.

Birtist fyrst á facebook-síðu forseta 22. janúar 2024.

  • Fylgst með leik karlalandsliðsins á Evrópumótinu í handbolta í hópi aldraðra Eyjamanna á dvalarheimilinu Hraunbúðum.
  • Handhafar Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands 2024, þeir Gonzalo Patricio Eldredge Arenas og Heiðar Snær Ásgeirsson. Ljósmynd: Arnaldur Halldórsson
  • Perlað með Krafti, stuðningsfélagi fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Ljósmynd: Eva Björk.
  • Með leikskólabörnum í Vestmannaeyjum.
  • Rætt við grunnskólabörn í Vestmannaeyjum.
  • Ávarp á málþing um umhverfis- og heilbrigðismál á Læknadögum í Hörpu í Reykjavík. Ljósmynd: Læknablaðið/Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
  • Fulltrúar allra öndvegisverkefna sem tilnefnd voru til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands ásamt Björgvini Stefáni Péturssyni, formanni stjórnar Nýsköpunarsjóðs námsmanna og Erlu Guðbjörgu Hallgrímsdóttur, fulltrúa nemenda í stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna. Ljósmynd: Arnaldur Halldórsson
Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar